Skilareglur
Almennar skilareglur
Viðskiptavinir hafa 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að varan hafi ekki verið notuð og henni sé skilað í upprunalegu ástandi. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent viðskiptavin. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Kostnaður við að skila vörunni, s.s. sendingarkostnaður, greiðist af viðskiptavin. Viðskiptavinur er sá sem skráður er sem slíkur á reikningi. Endilega hafðu samband við okkur á adstod@herravorur.is með pöntunarnúmeri og upplýsingum um vöruna sem þú vilt skila eða skipta. Við útvegum fljótt skilanúmer og upplýsingar um næstu skref.
Galli:
Ef viðskiptavinur kaupir gallaða vöru í vefverslun Herravörur er boðið upp á viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Sú leið sem valin hverju sinni fer eftir atvikum og eðli gallans. Um rétt einstaklings sem versla í vefverslun Herravörur, eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Herravörur í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Takmörkun ábyrgðar:
Ábyrgðin tekur aðeins til verksmiðjugalla sem sannanlega koma fram í vörunni á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin felur ekki í sér rétt kaupanda til þess að fá endurgreiðslu eða útskipti vegna rangrar notkunar eða slæmrar meðferð, raka- eða höggskemmdum, lélegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum o.s.frv.