Almennir skilmálar
Almennt:
Neytendur eru hvattir til þess að lesa skilmála þessa vandlega áður en þeir versla í vefverslun Herravara, www.herravorur.is
Um notkun vefsíðu og vefverslun Herravara. gilda skilmálar þessir.
Með því að nota vefsíðu og vefverslunina herravorur.is samþykkir og viðurkennir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt, án fyrirvara, skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
Herravörur ehf., kt. 670721-2480 stendur fyrir netverslunninni Herravorur.is
info@herravorur.is
VSK nr. 141880
Herravörur efh. áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.
Verð:
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.
Herravörur áskilja sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunar er að ræða.
Vörur til einkanota:
Vörurnar í vefverslun Herravara eru eingöngu til persónulegra nota. Undir engum kringumstæðum er heimilt að stunda endursölu á vörum keyptum hjá Herravara án tilskilinna leyfa. Herravörur áskilja sér rétt til að stöðva afgreiðslu pantana eða halda eftir hluta þeirra ef talið er að þær brjóti í bága við þessa skilmála.
Póstlisti:
Herravörur vinnur með tölvupóstfang, sem einstaklingur hefur skráð og samþykkt notkun á fyrirfram, í útsendingum á markpósti til einstaklinga á póstlista fyrirtækisins. Enn fremur getur einstaklingur skráð upplýsingar eins og t.d. nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og kyn. Þá er óskað eftir samþykki til þess að vinna með upplýsingar um kaup hans á vörum og þjónustu Herravörur í því skyni að stunda markaðssetningu á vörum og þjónustu Herravörur Með skráningu þessara valkvæðu upplýsinga samþykkir einstaklingur að Herravörur megi samkeyra upplýsingar um hann úr öðrum viðskiptakerfum fyrirtækisins, s.s. sölukerfi og CRM-kerfi (e. Customer relationship management), til þess að geta veitt betri þjónustu og sent út einstaklingsmiðaðri skilaboð.
Þessi vinnsla byggir á samþykki og er einstaklingi alltaf heimilt hvenær sem er að afturkalla samþykki sitt og afskrá sig af póstlista fyrirtækisins með því að ýta á þar til gerðan hlekk í markpóstum, senda póst á netfangið info@herravorur.is.
Nákvæmni upplýsinga:
Reynt er eftir bestu getu að hafa réttar upplýsingar og vörumyndir í vefverslun. Upp geta komið tilvik þar sem um minniháttar litamun eða umbúðamun getur verið að ræða. Að öðru leyti eru upplýsingar birtar með fyrirvara um innsláttarvillur eða minniháttar uppfærslutafir.
Greiðsluleiðir:
Hægt er að inna greiðslu af hendi í vefverslun með greiðslukorti, millifærslu, Netgíró eða Aukakrónum Landsbankans.
Herravörur er eigandi vörunnar þar til andvirði hennar er að fullu greitt.
Galli:
Ef viðskiptavinur kaupir gallaða vöru í vefverslun Herravörur er boðið upp á viðgerð, nýja vöru, afslátt eða endurgreiðslu kaupverðs. Sú leið sem valin hverju sinni fer eftir atvikum og eðli gallans. Um rétt einstaklings sem versla í vefverslun Herravörur, eigi í þágu atvinnurekstrar, vegna galla vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003. Varðandi rétt fyrirtækja og einstaklinga sem versla í vefverslun Herravörur í þágu atvinnurekstrar vísast til laga um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Takmörkun ábyrgðar:
Ábyrgðin tekur aðeins til verksmiðjugalla sem sannanlega koma fram í vörunni á ábyrgðartímanum. Ábyrgðin felur ekki í sér rétt kaupanda til þess að fá endurgreiðslu eða útskipti vegna rangrar notkunar eða slæmrar meðferð, raka- eða höggskemmdum, lélegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum o.s.frv.
Lög og varnarþing:
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal það rekið fyrir héraðsdómi Reykjaness. Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja að líða þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.